
LÍF BYGGINGAR
TEIKNI- OG VERKFRÆÐISTOFA
Byggjum sjálfbæra framtíð
ÞJÓNUSTA
Lagna- og loftræstihönnun
Líf byggingar býður upp á hönnun lagna- og loftræstikerfa fyrir allar gerðir mannvirkja, sem og orkuútreikninga fyrir byggingar, útreikningar á orkuramma samkvæmt reglugerð, hermanir á loftgæðum og hitastigi í byggingum, þarfagreiningu, ráðgjöf og hönnun vegna úrbóta og stækkunar á eldri lagna- og loftræstikerfum.

Verkefnastjórnun og eftirlit
Líf byggingar tekur að sér að aðstoða við undirbúning, skipulagningu og áætlanagerð verkefna ásamt eftirliti með öllum þáttum verkefnisins á framkvæmdatíma.

Hönnun aðaluppdrátta
Líf byggingar tekur að sér hönnun sérbýla og sumarhúsa


STOFAN
Líf byggingar er framsækin teikni- og verkfræðistofa sem sérhæfir sig í sjálfbærri hönnun mannvirkja. Sameiginleg ástríða okkar fyrir nýsköpun og gæðum knýr okkur til að skapa lausnir sem standast hæstu kröfur.
Okkar nálgun
Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu þar sem þarfir viðskiptavina eru í fyrirrúmi. Með því að nýta stafræna tækni og BIM-aðferðarfræði tryggjum við nákvæma og skilvirka hönnunarferla. Markmið okkar er að stuðla að sjálfbærni og hagkvæmni í öllum okkar verkum.
Með samstilltu teymi og fjölbreyttri sérfræðiþekkingu erum við reiðubúin að takast á við krefjandi verkefni og veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu.
STARFSFÓLK
Hjá Líf byggingum starfa sérfræðingar sem hafa mikla og margbreytilega reynslu við hönnun, ráðgjöf, verkefnastjórnun, eftirlit og orkuútreikninga bygginga.
HAFA SAMBAND
Fyrirspurnir
Staðsetning
Hallgerðargata 13
105 Reykjavík