top of page

LÍF BYGGINGAR
TEIKNI- OG VERKFRÆÐISTOFA

Byggjum sjálfbæra framtíð

ÞJÓNUSTA

ÞJÓNUSTA

Ráðgjafaþjónusta fyrir verkkaupa

Líf byggingar veita óháða og faglega ráðgjöf á sviði lagna- og loftræsikerfa fyrir fyrirtæki og opinbera aðila.

 

Við styðjum verkkaupa við undirbúning, hönnun og framkvæmd byggingaverkefna með það að markmiði að tryggja gæði, hagkvæmni og að endanleg lausn sé í samræmi við kröfur og væntingar.

 

Algengt er að verkkaupar fái ekki þau gæði í lagna- og loftræstikerfum sem þeir vænta, meðal annars vegna þess að tæknileg gögn og hönnunargögn geta verið flókin og erfitt að meta.

​

Með rýni þriðja aðila (e. independent third-party review) má draga úr slíkri áhættu, auka gagnsæi og styrkja þannig faglega ákvarðanatöku.

​

Þjónusta fyrir loftræsiráðgjöf og lagnaráðgjöf felur í sér eftirfarandi:

  • yfirferð frumhönnunar og hönnunargagna,

  • ráðgjöf við val á lausnum,

  • verkeftirlit á framkvæmdartíma,

  • rýni þriðja aðila (independent third-party review).

 

Með aðkomu Líf bygginga fá verkkaupar aukið öryggi í ákvarðanatöku og betri tryggingu fyrir því að lagna- og loftræsikerfi uppfylli settar kröfur og væntingar þeirra.

Pipes

Lagna- og loftræstihönnun

Líf byggingar býður upp á hönnun lagna- og loftræstikerfa fyrir allar gerðir mannvirkja, sem og orkuútreikninga fyrir byggingar, útreikningar á orkuramma samkvæmt reglugerð, hermanir á loftgæðum og hitastigi í byggingum, þarfagreiningu, ráðgjöf og hönnun vegna úrbóta og stækkunar á eldri lagna- og loftræstikerfum.

Verkefnastjórnun og eftirlit

Líf byggingar tekur að sér að aðstoða við undirbúning, skipulagningu og áætlanagerð verkefna ásamt eftirliti með öllum þáttum verkefnisins á framkvæmdatíma.

VERKEFNI

VERKEFNI

STOFAN
office space

STOFAN

Líf byggingar er framsækin teikni- og verkfræðistofa sem sérhæfir sig í sjálfbærri hönnun mannvirkja. Sameiginleg ástríða okkar fyrir nýsköpun og gæðum knýr okkur til að skapa lausnir sem standast hæstu kröfur.

​

Okkar nálgun

Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu þar sem þarfir viðskiptavina eru í fyrirrúmi. Með því að nýta stafræna tækni og BIM-aðferðarfræði tryggjum við nákvæma og skilvirka hönnunarferla. Markmið okkar er að stuðla að sjálfbærni og hagkvæmni í öllum okkar verkum.

​

Með samstilltu teymi og fjölbreyttri sérfræðiþekkingu erum við reiðubúin að takast á við krefjandi verkefni og veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu.

STARFSFÓLK

STARFSFÓLK

Hjá Líf byggingum starfa sérfræðingar sem hafa mikla og margbreytilega reynslu við hönnun, ráðgjöf, verkefnastjórnun, eftirlit og orkuútreikninga bygginga.

jon_sigurdsson_sq.jpg

Jón Sigurðsson

Eigandi

Jón er menntaður byggingafræðingur og er löggildur blikksmíðameistari.

 

Eftir útskrift hóf Jón störf hjá verkfræðistofunni Mannvit þar sem hann vann í tæp 17 ár.

 

Þar vann hann sem lagna- og loftræstihönnuður, verkefnastjóri og Svansvottunarfulltrúi í hinum ýmsu verkefnum.

 

Jón er með IPMA D verkefnastjórnunarvottun.

842-3115

hjorvar_sigurdsson_sq.jpg

Hjörvar Sigurðsson

Eigandi

Hjörvar er vél- og orkutæknifræðingur, löggildur lagnahönnuður og með sveinspróf í blikksmíði.

 

Hann starfaði sem blikksmiður áður en hann hóf störf á hjá Mannvit þar sem hann vann í 8 ár við hönnun lagna- og loftræstikerfa.

 

Eftir það starfaði hann sem sölustjóri á Hústæknisviði FálkansÍsmar í tæp 2 ár. 

869-3509 

sigurdur_ingi_einarsson_sq.jpg

Sigurður Ingi Einarsson

Eigandi

Sigurður er með meistaragráðu í vélaverkfræði og löggildur lagnahönnuður.

​

Sigurður hefur sinnt hönnun og eftirliti á hótelum, álverum, skólum, leikskólum, ráðstefnuhöll, háskólasjúkrahúsi og háskólahúsnæði og hefur komið að hönnun lagna og loftræstikerfa margra stærstu bygginga landsins síðustu áratugina.

863-2500

sigurgeir_thorarinsson_litur_sq.jpg

Sigurgeir Þórarinsson

​

Sigurgeir er vél- og orkutæknifræðingur frá Odense Teknikum og löggildur lagnahönnuður.

​

Sigurgeir starfaði hjá VGK, Mannviti og Cowi í yfir 40 ár við hönnun loftræstikerfa og lagna í margar stórbyggingar landsins, m.a. Hörpu, Borgarleikhúsið, Útvarpshúsið, hús Íslenskrar erfðagreiningar ásamt fjölda skrifstofubygginga, skóla, safna og hótela.

​

Hann hefur tekið þátt í þróun og innleiðingum á mörgum nýjungum í loftræstikerfum í gegnum árin og hefur verið leiðbeinandi í loftræsitækni fyrir tæknifræðinema í HR síðustu ár.

​

Þá hefur Sigurgeir tekið að sér hönnun og eftirlit á loftræstingum í nokkrum torfbæjum og gömlum húsum á vegum húsasviðs Þjóðminjasafnsins.

Hann hefur einnig sinnt ráðgjöf, eftirliti og úttektum á loftræstikerfum.

855-1199

arni_bjorgvinsson_litur_sq.jpg

Árni Viðar Björgvinsson

​

Árni er menntaður tækniteiknari og rafvirki, og starfaði sem rafvirki í 6 ár áður en hann lærði tækniteiknun.

​

Árni vann á verkfræðistofunni Vektor samhliða námi og fram til 2008, en hóf þá störf á verkfræðistofunni Mannvit (síðar COWI) og vann þar í tæp 17 ár.

​

Hann hefur unnið sem kennari, tækniteiknari, og CAD og BIM stjóri í mörgum af stærstu verkefnum landsins undanfarin 17 ár.

.

HAFA SAMBAND

HAFA SAMBAND

Fyrirspurnir

Líf byggingar

Hallgerðargata 13

105 Reykjavík
Kt.: 560523-1730
Vsk-númer: 149321

Höfundarréttur © 2025 Líf byggingar

  • Linkedin
bottom of page